
Siglufjörður, Ísland
Hlýlegt samkomu- og gistihús sem er fullkomið fyrir hópa!
Skíði · Gönguhópar · Brúðkaup · Ættarmót · Afmæli · Vinahópar · Fyrirtækjahópar · Heilsudvalir
Um Hól á Siglufirði
Hóll á Siglufirði stendur eitt og sér á einstökum stað með stórbrotið útsýni yfir fjöll og fjörð. Hér mætast náttúra, saga og rými fyrir hópa sem vilja njóta samveru, kyrrðar og ævintýra á norðurhjara Íslands.
Húsið hefur verið tekið í gegn og endurnýjað með þarfir hópa í huga og er í dag fullbúið til að taka á móti gestum sem vilja skapa minningar og upplifa eitthvað meira en hefðbundna gistingu.
Siglufjörður
Norðurland
Nýlega
Endurnýjað
Skíðasvæði
Í nágrenninu
35+
Gestir
12
Svefnherbergi
20+
Manna setlaug
75
fm partýsalur
Aðstaðan
Hóll er fullkominn staður fyrir brúðkaup, ættarmót, afmæli, vinahópa, fyrirtækjahópa, náttúrudvalir og aðra hópa í leit að ævintýrum.
12 svefnherbergi í aðalhúsi og íbúð, auk möguleika á aukadýnum fyrir stærri hópa.
Hraðhleðsla fyrir rafbíla og aðstaða fyrir tjöld/ferðavagna yfir sumartímann.
Fullbúið brunakerfi og slökkvitæki í öllu húsinu.
Ryksuga, moppa og öll nauðsynleg þrifatæki til staðar.
Rúmgóð geymsla fyrir skíðagalla, skó og útifatnað.
6 salerni og 8 sturtur í húsinu.
Stór steypt verönd með snjóbræðslukerfi.
Hraðhleðsla fyrir rafbíla.
Þvottavél með þurrkara.
Öflugt þráðlaust net um allt húsið.
Frábær aðstaða fyrir vinnustofur, fundi og hópefli. Tússtafla og sjónvarpsskjár eru til staðar.
Rúmgóð aðstaða til að njóta máltíða saman fyrir hópa.
Stór heitur pottur með einstöku útsýni yfir Siglufjörð og fjöllin.
Rúmgóð sauna í aðalhúsinu fyrir slökun eftir ævintýrin.
Flothetta fyrir setlaugina.
Matsalur með sófum og sjónvarpi.
Stórt eldhús með öllu sem þarf til matreiðslu fyrir stóra hópa.
Þrír kæliskápar og stór frystiskápur.
Klakavél fyrir drykki og kælingu.
Tvö stór gasgrill á veröndinni.
Tveir stórir 16" gaspizzaofnar.
Stór paella-panna fyrir hópeldun.
Tvær uppþvottavélar fyrir stóra hópa.
Nespresso- og uppáhellingarkaffivélar.
75 fm salur með píluspjaldi, poolborði, borðtennisborði og bar.
Hárkollur, hattar og annar skemmtilegur partýbúnaður.
Fullbúinn bar í partýsalnum með baráhöldum, klakavél, vask og ísskáp. Hér er allt til staðar fyrir alvöru stemningu og vel heppnað partý.
Bjórdæla á barnum.
Soundboks 3 og Soundboks GO hátalarar.
Karaoke græjur fyrir skemmtun.
4 sjónvörp um allt húsið.
Gítar til afnota fyrir gesti.
Poolborð í partýsalnum.
Borðtennisborð.
Píluspjald í partýsalnum.
Útiborð og stólar á verönd.
Barnastóll til afnota.
Barnarúm til afnota.
Úrval af borðspilum fyrir alla aldurshópa.
Fótboltavöllur við húsið fyrir íþróttir, leiki og skemmtun.
Fallegur 9 holna golfvöllur skammt frá Hóli.
Skíðasvæðið á Siglufirði er rétt hjá og gönguskíði í göngufæri frá Hóli. Tröllaskagi er einnig einstakur fyrir fjallaskíði.
Fjölbreyttar gönguleiðir í nágrenni Hóls fyrir alla aldurshópa.
Möguleg stangveiði og sjóstöng í nágrenninu.
Friðsælt umhverfi með útsýni yfir náttúruna.
Barnastóll, barnarúm og fleira til staðar.
Upplifun
Upplifðu töfrandi norðurljós beint fyrir utan
Hafa samband
Hafðu samband við Gunnlaug fyrir upplýsingar og bókanir. Við svörum fyrirspurnum eins fljótt og auðið er.
Sendu okkur fyrirspurn og við höfum samband eins fljótt og auðið er til að fara yfir óskir, dagsetningar og þarfir.
Fullkomið fyrir: